Stefnumiðaðir stjórnarhættir: Dæmi frá Orkuveitu Reykjavíkur
Autor: | Bjarni Snæbjörn Jónsson, Guðrún Erla Jónsdóttir, Runólfur Smári Steinþórsson |
---|---|
Rok vydání: | 2018 |
Předmět: | |
Zdroj: | Tímarit um viðskipti og efnahagsmál. 15:21-46 |
ISSN: | 1670-4851 1670-4444 |
DOI: | 10.24122/tve.a.2018.15.2.2 |
Popis: | Þessi grein er á sviði stjórnarhátta og fjallar um rannsókn á eigendastefnu og stefnumiðuðum stjórnarháttum hjá Orkuveitu Reykjavíkur (OR). OR er sameignarfyrirtæki í eigu þriggja sveitarfélaga. Staða og þróun OR er áhugaverð vegna lagabreytinga sem knúðu á um að raforkuframleiðsla og -sala skyldi sett í sérstakt fyrirtæki og vera aðskilin frá veiturekstri OR. Í ársbyrjun 2014 var OR skipt upp í samstæðu sem samanstendur af móðurfélagi og þremur dótturfélögum. Við þau tímamót var sameignarsamningur OR endurnýjaður ásamt eigendastefnu, og stjórnarhættir fyrirtækisins endurskoðaðir. Í rannsókninni er fjallað um innra samhengi milli sameignarsamnings OR, eigendastefnu og heildarstefnu fyrirtækisins og rýnt í hvernig unnið er að framkvæmd eigendastefnunnar í samstæðunni. Helstu niðurstöður eru þær að með sérstöku verklagi við rýni, mótun og eftirfylgni er stuðlað að því að stjórn samstæðunnar hafi nauðsynlega yfirsýn til að sinna stefnutengdu hlutverki sínu í því flókna stjórnskipulagi sem varð til við uppskiptingu fyrirtækisins. Einnig kemur fram að sérstakar aðstæður OR eftir hrunið höfðu áhrif á þróun skipulags og stjórnarhátta. |
Databáze: | OpenAIRE |
Externí odkaz: |