Fíklar í bata: Um lífsgleðifyrirtækið SkjáEinn, raunveruleika- sjónvarp og góðærishugsun útrásaráranna

Autor: Sigrún Margrét Guðmundsdóttir
Rok vydání: 2022
Předmět:
Zdroj: Ritið. 22
ISSN: 2298-8513
1670-0139
Popis: Í greininni er fjallað um upphafsár íslenska raunveruleikasjónvarpsins, sem kalla mætti gullaldarár þess, frá 2000–2006. Raunveruleikasjónvarpið er sett í menningar- sögulegt samhengi, meðal annars í tengslum við upphafsár SkjásEins, en kúltúrinn sem viðgekkst á sjónvarpsstöðinni einkenndi allt frá verkefnavalinu til vinnustaða- menningarinnar en lá jafnframt í þeim margbreytilegu venslum sem má finna á milli fyrirtækisins og tíðarandans. Einnig er raunveruleikasjónvarpið lesið saman við tíðarandann á þessum árum því að á tímabilinu sem einkum er skoðað stóð útrásin einmitt sem hæst. Það er sett í samhengi við hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar, ekki síst sjálfsstjórn.
Databáze: OpenAIRE